styrkja

 

Um Austur-Kongó

Mið-Afríkuríkið Austur-Kongó er þriðja stærsta ríki Afríku og það fjórða fjölmennasta, með rúmlega 66 milljónir íbúa. Landið liggur að litlum hluta að Atlantshafinu en er annars með landamæri að níu löndum. Opinbert tungumál í Austur-Kongó er franska.

Saga Austur-Kongó er blóði drifin. Leopold II Belgíukonungur varð formlega eigandi Austur-Kongó árið 1885 og stýrði landinu af mikilli grimmd og auðgaðist Leopold gríðarlega á gúmmíframleiðslu. Talið er að á meðan Austur-Kongó var í einkaeign Leopolds hafi íbúum landsins fækkað um helming vegna harðræðis og sjúkdóma. Árið 1908 flutti Belgíska þingið landið undir ríkið eftir mikinn þrýstíng frá öðrum Evrópuríkjum sem misbauð meðferðina á innfæddum.

Austu-Kongó fékk sjálfstæði árið 1960. Mikið hefur verið um átök og harðstjórn í landinu allar götur síðan.

Landið er í rúst eftir seinna Kongó-stríðið sem hófst árið 1998. Herlið frá sjö erlendum ríkjum komu þar við sögu og er stundum talað um „Afrísku heimstyrjöldina“ vegna þess hve mörg lönd drógust inn í átökin. Þrátt fyrir friðarsamninga sem undirritaðir voru árið 2003 geysa enn átök í austurhluta landsins. Um er að ræða mannskæðasta stríð veraldar frá lokum seinni heimstyrjaldarinnar. Alls er talið að um 4-5,4 milljónir manna hafi dáið vegna átakanna og mörg þúsund hafa misst heimili sín.

 

Nauðganir í Austur-Kongó

Árið 1998 hófust vopnuð átök í Austur-Kongó sem talin eru hafa kostað um fimm milljónir manna lífið. Allt frá upphafi átakanna hefur kynferðisofbeldi gegn konum og stúlkubörnum verið beitt í hernaðarlegum tilgangi; konum og stúlkum hefur verið skipulega nauðgað, til að niðurlægja þær og sundra fjölskyldum og samfélögum. UNICEF áætlar að þolendur nauðgana séu mörg hundruð þúsund og að þar af sé yfir helmingurinn börn. Þó stríðinu hafi formlega lokið árið 2003 eru nauðganir og ofbeldi enn daglegt brauð og stúlkur og konur eru hvergi óhultar fyrir ógn ofbeldis.

Mörgum þolendum er hafnað af fjölskyldum sínum og eiga ekki í nein hús að venda. Auk hinna sálrænu afleiðinga á þolendur ofbeldisins fá margar konur og stúlkur alvarleg sár og skurði á kynfæri, áverka á spöng og aðra líkamlega áverka, auk þes sem þær verða þungaðar gegn vilja sínum og smitast af kynsjúkdómum, þar á meðal HIV. Margt af því sem þolendur kynferðisofbeldis í Austur-Kongó hafa mátt þola er nánast ólýsanlegt.

Eitt af þeim vandamálum sem þolendur kynferðisofbeldis í Austur-Kongó standa frammi fyrir er skortur á læknisþjónustu, ekki síst vegna kynsjúkdóma eins og HIV. Annað mjög alvarlegt vandamála eru þær gríðarlegu hindranir sem mæta þolendum sem hyggjast leita réttar síns. Loks má nefna viðmót samfélagsins til þolenda nauðgana. Eins og mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna benti á eftir heimsókn sína til landsins: „Meðan fórnarlömb kynferðis ofbeldis eru brennimerkt og útskúfuð úr samfélaginu eru nær engir fordómar í garð gerenda.

 

UNICEF í Austur-Kongó

UNICEF hefur verið með starfsemi í Austur-Kongó frá árinu 1963. Samtökin hafa unnið að hag barna í landinu með fjölbreytu móti; á sviði heilsugæslu, menntunar og verndar gegn ofbeldi og misnotkun. Samtökin hafa átt gott samstarf við stjórnvöld í landinu og njóta virðingar, sem ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna og í ljósi langrar viðveru í Austur-Kongó.

Frá júlí 2003 hefur UNICEF í Austur-Kongó ýtt fjölmörgum verkefnum úr vör sem miða að því að uppræta viðhorf sem stuðla að kynferðisofbeldi, ýta á stjórnvöld til að grípa til árángursríkra aðgerða og lina þjáningar barnungra þolenda á þeim svæðum þar sem ástandið er alvarlegast: Norður-Kivu, Suður-Kivu, Maniema og Austurhéruðunum. Í hverjum mánuði fá þúsundir þolenda kynferðisofbeldis stuðning (læknis-, sálfræði- og félagslega aðstoð) fyrir tilstuðlan verkefna á vegum eða styrktum af UNICEF.

 

Samstarf V-dagsins og UNICEF

Árið 2007 tóku hin alþjóðlegu V-dagssamtök og UNICEF, í samvinnu við konur í Austur-Kongó, höndum saman til að vekja athygli á stöðu kvenna og stúlkubarna í landinu. Yfirskrift herferðar samtakanna er Stop Raping Our Greatest Resource: Power To The Women And Girls Of The Democratic Republic Of Congo. Tilgangurinn er einnig að afla fjár til verkefna UNICEF í þágu þolenda nauðgana í Austur-Kongó.

Nánar má lesa um samstarfið á heimasíðu V-dagssamtakanna.

 

Dæmi um verkefni á vegum UNICEF og V-dagsins

Panzi-spítali
Panzi-spítalinn í Austur-Kongó er dæmi um verkefni sem UNICEF og V-dagurinn styrkja Þessi merkilegi spítali veitir ekki aðeins læknisaðstoð vegna líkamsáverka í kjölfar kynferðisofbeldis heldur er hann einnig öruggt athvarf fyrir óteljandi þolendur nauðgana Á Panzi-spítala hafa fjölmargar konur og stúlkur fundið skjól og umhyggju.

Grein sem birtist í Glamour Magazin árið 2007 varpar ljósi á það merkilega starf sem þarna er unnið.

 

Ánægjuborgin
Panzi-spítalinn, UNICEF og V-dagssamtökin hafa tekið höndum saman vegna uppbyggingar „Ánægjuborgarinnar“ (e. City of Joy), athvarfs fyrir konur og stúlkur sem hefur verið nauðgað en eiga þess ekki kosta að fara aftur til fjölskyldna sinna. Í Ánægjuborginni fá konurnar og börn þeirra heilsugæslu, menntun og tækifæri til að afla sér tekna.